ljómi og lífsgæði

Lífsveiflumeðferð:

Tölvustýrð meðferð til að örva orkukerfi líkamans og bæta heilsuna.

Vitalis ehf býður upp á lífsveiflumeðferðir til að auka orku, leiðrétta ójafnvægi í orkukerfum líkamans og hjálpa til við bataferli. Yfir 1800 forrit í tölvustýrðu vottuðu lækningatæki  geta hjálpað líkamanum á rétta braut.

Rayonex Biomedical hefur framleitt lífsveiflutæki (Bioresonance Medicine) í 35 ár og byggir tæknin á uppgötvunum og rannsóknum verkfræðingsins Paul Schmidt. Vitalis ehf hefur einkaumboð á Íslandi til sölu og þjónustu Rayonex lífsveiflubúnaði og má sjá nánar hér.

Rannsóknir stofnanna á borð við Fraunhofer í Dresden og Dartsch Scientific GmbH hafa staðfest virkni þessarar tækni, ásamt rannsóknum fjölda lækna og rannsóknarstofa. Rannsókn Fraunhofer stofnunarinnar var stýrt af Dr. Ing. Habil. Christiane Wetzel og sýndi skýr jákvæð áhrif tækninnar á virkni frumna.

Myndband sýnir hvernig virkni frumna eykst við meðferð

Kynningarmyndband fyrir Rayonex tæknina.

Lífsveiflutækni byggir á aldagamalli  tækni til lækninga. Um aldir hafa hljóðbylgjur verið notaðar með ýmisskonar hljóðfærum en einnig röddin. Beiting raddbanda til myndunar hljóðbylgna er nokkurskonar bylgjumeðferð. Í lífsveiflutækninni er búið að greina hvaða tíðnir hafa góð áhrif á tilekin líffæri eða lífkerfi til að ná markvissari árangri. Þar með getum við talað um lífsveiflur sem eru í raun tíðnir sem hafa bein eða óbein áhrif á lifandi frumur.

Við minnum á að ávallt skal byrja á að leita aðstoðar lækna þegar heilsan brestur. Læknisfræðileg greining er frumskilyrði þegar leitað er leiða til að bæta heilsuna. Lífsveiflutækni  getur hjálpað og vinnur þessi tækni vel með læknisfræðilegum og óhefðbundnum meðferðum.

 

4 sérmenntaðir meðferðaraðilar starfa við Rayonex lífsveiflutækni og eru allir með vottun frá Rayonex Biomedical GmbH.

Viðtal – mæling – meðferð er fyrsta skrefið. Við tökum spjallið og látum tækin greina tíðniróf líkamans til að leita uppi skekkjur. Þessir tímar eru 90 mínútur. Þegar greining liggur fyrir er hægt að áætla meðferð og þá er það spurning um endurtekin greiningartíma eða 50 mínútna endurkomu í meðferð. 

Samtalið!

Viðtal er til alls fyrst. Skoðum söguna, ástandið í dag og metum heilsuna heildrænt.

Endurkoma!

Endurkomur í 2 – 5 skipti geta verið nauðsynlegar til að vinna betur á vandanum.

Næring!

Næring og umhverfi. Við ráðleggjum gagnvart næringu og fæðubótarefnum og einnig gagnvart umhverfinu. Eru mögulega eiturefni eða rafgeislun í umhverfinu og metum hvað er til ráða.

Meðferðir taka frá 50 mínútum til 90. Notandinn einfaldlega leggst á þægilegan bekk, hallar sér aftur og slakar á meðan á meðferð stendur. Daufar bylgjur á hárnákvæmum tíðnum leika um allan líkamann og kalla eftir aukinni virkni frumna.

 

 Við bjóðum upp á tíðnirófsmælingar á líkamanum með skírskotun til líffærafræði í gegn um hjartalínurita til að finna og vinna úr skekkjum í orkukerfi líkamans. Meðferðin getur flýtt fyrir viðgerðarferli líkamans.

Forsíða
Forsíða

Höfuðstöðvar Rayonex

Tækin eru vottuð lækningatæki (Medical device a-II ) og hafa tilraunir lækna og rannsóknarstofa leitt í ljós jákvæðan árangur af notkun tækninnar. Hjartalæknir í Hollandi, Dr. Med. Thomas Vieth hjá Klinikum Chemnitz GmbH, notar Rayonex tækið samhliða lyfjagjöf.

Geðlæknir í Svíðþjóð og sérfræðingur í einhverfu dr. med. Harald Blomberg meðhöndlar sína skjólstæðinga með Rayonex bylgjumeðferð samhliða lyfjagjöf og Dr. Med. Hamada í Japan notar þessa tækni gegn ófrjósemi.

Bóka tíma

Hleð inn ...

Skráðu þig á póstlistann okkar

Reynslusögur

  • Ég hafði þjáðst af stöðugum hósta og pirringi í hálsi í marga mánuði. Rannsóknir leiddu ekkert í ljós. Eftir einn tíma í Rayonex tækinu hvarf hóstinn og ég fór að sofa eins og lamb.

    Ebba
  • Ég var ákveðin í að hætta að vinna. Vefjagigt, verkir og vanlíðan var algerlega að gera út af við mig og ég sá ekkert  framundan. Eftir nokkra tíma í Rayonex bylgjumeðferð snerist dæmið við og ég náði tökum á minni vanlíðan og gat haldið áfram að vinna.

    Hildur
  • Orkuleysi, slen og verkir voru að gera út af við mig. Eftir langvarandi búsetu í mygluumhverfi var heilsan farin og orkuleysið algert. Eftir nokkra tíma í Rayonex náði ég orkunni upp og baráttuviljanum. Eftir átta tíma gat ég tekið 9 holu golfvöll sem var kraftaverk og síðar tókst mér að taka 18 holu völl. Þetta var með ólíkindum.

    Hanna

Meðferðaraðilar eru allir sérhæfðir í notkun Rayonex Bioresonance Medicine með viðurkenningu frá Paul Schmidt Academy í Sauerland Þýskalandi

  • Valdemar Gísli Valdemarsson Rayonex meðferðaraðili Reykjavík

    Dipl. Bioresonance Medicine frá Biomedic Foundation í London.

    Rayonex Bioresonance Praktiker frá Paul Schmidt Academy 

  • Fjóla Malen Rayonex meðferðaraðili austurlandi

    Hómópati

    GSM 861 1006

Hafðu samband

Við erum ekki við eins og er, en sendu okkur skilaboð og við höfum samband.